Í maí 2022 keyptu Heimar gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju en hluti af samkomulaginu var að ráðist yrði í endurbætur á kirkjutröppunum þar fyrir ofan. Endurbótum á tröppunum lauk í desember 2024 en þá voru þær endursteyptar, búnar nýju snjóbræðslukerfi, nýrri lýsingu og klæddar nýjum granítsteini.

Nú eru framkvæmdir við gömlu náðhúsin undir kirkjutröppunum hafnar. Þar mun á næstu mánuðum rísa nýtt verslunar- og þjónusturými með aðlaðandi útisvæði. Hönnun verkefnisins er unnin í samstarfi við AVH en frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að viðbyggingin falli vel að umhverfinu og dragi ekki úr ásýnd kirkjutrappnanna.

Framkvæmdir hófust um miðjan júní og eru verklok áætluð á seinni hluta ársins.