Lúxus skemmtiferðaskipið Seven Seas Grandeur er nú við akkeri á Siglufirði með stóran hóp ferðamanna sem ferjaðir eru í land. Skipið er byggt árið 2023 og er 224 metrar á lengd og 31 metri á breidd. Skipið tekur um 750 gesti og hefur 542 áhafnarmeðlimi. 375 klefar eru í þessu glæsilega skipi sem er sérlega vel búið.
Farþegar eru fluttir í land, og fara víða á Siglufirði og einnig fara margir með rútum til Mývatns. Á Siglufirði fóru þrír hópar í skoðunarferð á Síldarminjasafnið og Sóti Summits tók hóp í aðra skoðunarferð. Áætlað er að skipið fari frá Siglufirði kl. 17:00 í dag.
Skipið kom frá Ísafirði, stoppar einnig Seyðisfirði áður en það siglir til Noregs. Áætlað er að túrinn endi í Oslo 15. ágúst næstkomandi. Skipið er á 14 daga siglingu sem hófst í Reykjavík 1. ágúst.



