Í lok september var nýtt listaverk vígt í Grímsey sem ber nafnið Orbis et Globus, og er nýtt kennileiti fyrir heimsskautsbauginn. Verkið er eftir Kristinn E. Hrafnsson og Steve Christer hjá Studio Granda. Kúlan er 3 metrar í þvermál og hugmynd listamannanna er sú að hún færist úr stað í samræmi við hreyfingar heimsskautsbaugsins þar til hann yfirgefur eyjuna árið 2047 eða því sem næst.
Forsaga málsins er að tillaga Kristins og Studio Granda sigraði í samkeppni um nýtt kennileiti sem efnt var til undir lok ársins 2013. Nú loks er kúlan komin á sinn stað og var hún vígð í blíðskaparveðri á heimskautsbaugnum að viðstöddum fjölda gesta.
Ávörp fluttu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Kristinn E. Hrafnsson listamaður og Elías Bj. Gíslason frá Ferðamálastofu.
