Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020. Breytingin tekur til svæðis sem merkt er sem íbúðarsvæði 405-ÍB í gildandi aðalskipulagi og felst í því að svæðið er stækkað til norðurs um 1,2 ha.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu rísi íbúðarbyggð með allt að 60 íbúðum í fjölbreyttum húsnæðisgerðum. Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.