Nýr upplýsingavefur Knattspyrnufélags Siglufjarðar (KS) opnar í dag á slóðinni kaess.is. Þar verður hægt að lesa sögur og skoða myndir frá KS í gegnum árin.
Í tengslum við þetta verkefni þá er kótilettukvöld KS haldið í kvöld á Rauðku og er það haldið til styrktar varðveiðslu á sögu Knattspyrnufélags Siglufjarðar. Húsið opnar kl. 19:00 og er ball með Ástarpungunum kl. 22:30. Þá er boðið upp á heimsendingu á mat til eldri borgara gegn gjaldi.