Knattspyrnudeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu Stephen Walmsley sem þjálfara meistaraflokks karla Tindastóls. Stephen mun vera spilandi þjálfari hjá liðinu en með honum verður Haukur Skúlason sem þjálfaði liðið í fyrra ásamt Stefáni Arnari. Á síðasta tímabili var Stephen leikmaður liðsins auk þess að þjálfa yngri flokka félagsins og var mikil ánægja með hans störf. Í lok tímabils var Stephen síðan kosinn besti leikmaður meistaraflokks karla Tindastóls.