Strákarnir á Siglufirði hafa sent út fjórða þátt í 2. seríu af Á tæpasta vaði. Hann er nú kominn á helstu veitur og aðgengilegur til hlustunnar. Það var svipuð umræða og í síðustu þáttum þar sem allt og ekkert er rætt í gríni og alvöru. Strákarnir hringja í vin í þættinum og ræða spjallvélmenni sem eru farin að taka við þjónustuhlutverki víða og ræða lauslega fjölástir. Strákarnir bíða enn eftir nýjum tæknibúnaði sem mun gjörbylta gæðum og opna fyrir möguleikann að fá inn gesti og hringja í viðmælendur. Það sem vantaði alveg í þennan þátt var umræða um knattspyrnu sem hefur verið fastur liður hingað til.

Þáttur fyrir alla harða aðdáendur þáttarins. Þátturinn er rúmur klukkutími að lengd.  Hægt er að nálgast alla þættina á Spotify veitunni.