Bæjarráð Fjallabyggðar gerir ekki athugasemdir við að nýir eigendur Kaffi Klöru taki yfir samning um rekstur tjaldsvæða Fjallabyggðar sem rennur út 15. nóvember 2024.
Samningur var gerður við fyrri eigendur kaffihússins árið 2022 og hefur verið mikil ánægja með starfsmenn Kaffi Klöru sem unnið hafa við rekstur tjaldsvæðanna í Fjallabyggð undanfarin ár.
Einstaklingar greiða 1600 kr. fyrir gistinóttina í sumar á Tjaldsvæðum Fjallabyggðar og er frítt fyrir börn 16 ára og eldri. Aðgangur er að þvottavél, þurrkara og rafmagni og er það greitt samkvæmt gjaldskrá.
Velkomin á tjaldsvæðin í Fjallabyggð í sumar.

