Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli á Akureyri var gangsett nú um helgina. Formleg vígsluathöfn verði haldin síðar. Lengd nýju lyftunnar er 1.160 metrar og fallhæð 374 metrar. Lyftan ber 1.650 manns á klukkustund og tekur um 8 mínútur að komast á leiðaranda.

Lyftan er framleidd af Doppelmayr, var keypt notuð frá Austurríki og sett upp af fyrirtækinu Pro-Alpin sem sérhæfir sig í kaupum og sölu á notuðum lyftum. Stór hluti búnaðarins í lyftunni hefur verið endurnýjaður, þ.á m. tölvustýring hennar sem er flunkuný og er allur stjórnbúnaður eins og um nýja lyftu væri að ræða. Öll lyftumöstur eru með sérstökum nemum sem sýna í rauntíma hvernig allur búnaður virkar.

Vegna aðstæðna og mikils bratta svo hátt í fjallinu, verður lyftan eingöngu notuð þegar skyggni er gott og snjóflóðahætta í lágmarki.