Aðalfundur Menningarfélagsins Bergs ses. var haldinn í Bergi Menningarhúsi 28. maí síðastliðinn. Þar fóru fram hefðbundin aðalfundastörf auk þess sem kosið var í nýja stjórn. Svanfríður Jónasdóttir gaf ekki kost á sér til frekari stjórnarsetu og líkur þar með hennar 10 ára setu í stjórn Menningarfélagsins. Nýja stjórn skipa Freyr Antonsson (formaður), Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson (gjaldkeri) og Dóróþea Reimarsdóttir (ritari). Varamenn eru Íris Hauksdóttir og Kristjana Arngrímsdóttir.
Blágrýti ehf sem starfrækt hefur veitingahúsið Basalt café+bistro í Bergi síðastliðin þrjú ár, hefur sagt upp samningum við Menningarfélagið Berg og fór fram á að losna frá skyldum sínum frá og með 1. júní. Stjórn menningarfélagsins Bergs féllst á að uppsögnin þeirra tæki gildi frá og með 1. júní síðastliðnum og er ákvörðunin tekin í gagnkvæmri sátt stjórnar og eigenda Blágrýtis.
Stefnt er á að Menningarfélagið Berg ses. viðhaldi góðu þjónustustigi í húsinu í sumar en biðlar til fólks að sýna því biðlund meðan unnið sé að framtíðaráformum. Það er stefnan að ávalt verði hægt að ganga að kaffi og léttum veitingum vísum á opnunartíma hússins. Nú þegar er hafin vinna næstu skrefa og mótun framtíðarstefnu Bergs Menningarhúss.
Íbúar sveitafélagsins verða vel upplýstir um gang mála en mikilvægur liður í áframhaldandi upplýsingaflæði til íbúa er m.a. að framvegis verða allar fundargerðir Menningarfélagsins birtar á heimasíðu Bergs og sérstök tilkynning um það sett á fésbókarsíðu menningarhússins og heimasíður Dalvíkurbyggðar.
Nú stendur yfir myndlistasýning Vignis Þórs Hallgrímssonar í Bergi og eru allir hvattir til að líta við og þiggja kaffi í boði hússins.