Hjúkrunarheimilið Hornbrekka í Ólafsfirði, Dvalarheimilið Skálarhlíð, Iðjan og heimilið að Lindargötu á Siglufirði  hafa hlotið Eden-viðurkenningu frá Eden Alternative alþjóðasamtökunum, sem gildir til næstu þriggja ára. Þessi viðurkenning er veitt fyrir framúrskarandi vinnu við að skapa einstaklingsmiðað umhverfi fyrir aldraða og aðra sem þurfa á daglegum stuðningi að halda. Hugmyndafræði Eden-samtakanna byggir á að veita bæði kennslu og ráðgjöf sem stuðlar að þróun menningar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu.

Eden-hugmyndafræðin leggur áherslu á að öldrunarheimili verði að raunverulegum heimilum þeirra sem þar búa, þar sem sjálfræði, virðing og reisn eru í fyrirrúmi. Umhverfið er gert heimilislegt og líflegt með því að byggja upp menningu þar sem þjónustan er sniðin að þörfum hvers einstaklings.

Starfsmenn og heimilisfólk eru að vonum ánægju sinni með viðurkenninguna og er hún mikil hvatningu til að halda áfram á sömu braut. Með því að innleiða Eden-hugmyndafræðina vinnur starfsfólk að því að styrkja sjálfræði heimilisfólks og veita þjónustu sem stuðlar að auknum lífsgæðum þeirra sem þar búa.

Þetta kom fram í tilkynningu frá Fjallabyggð.