Íþróttavika Evrópu hófst í byrjun vikunnar og af því tilefni var fjölbreytt dagskrá skipulögð í Menntaskólanum á Tröllaskaga þessa viku. Nemendur fengu tilsögn í bardagaíþróttum, dansað var í skólanum og Ólympíuhlaup ÍSÍ var hlaupið. Einnig var bekkpressukeppni, fjallganga, sjósund, jóga, frisbígolf og ratleikur.
Í lok vikunnar kom stór hópur nemenda frá Spáni og Ítalíu í MTR og tóku þátt í útileikjum. Kennarar skólans búa yfir margvíslegri þekkingu og leiðbeina á mörgum sviðum en Lísebet Hauksdóttir íþróttakennari bar hitann og þungann af skipulagningu vikunnar.
Íþróttavika Evrópu er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings, eins og segir á heimasíðu verkefnisins, beactive.is