Ljósmyndasýning fimm nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga var opnuð í Quixnotic kaffihúsinu í Minneapolis í Bandaríkjunum á laugardaginn síðastliðinn. Graycloud Rios listljósmyndari sem kom og kenndi í MTR í miðannarviku, hreifst mjög af verkum nemenda og bauð þeim að sýna þar undir þemanu “My Iceland“.Graycloud Rios sá um að ganga frá myndum nemenda, ramma þær inn og hengja upp á vegg.
Þeir sem eiga myndir á sýningunni eru: Atli Tómasson, Hrönn Helgadóttir, Kári Björn Þorleifsson, Kristín Sigurjónsdóttir og Ómar Örn Ragnarsson. Þau eru komin á 3. þrep í námi sínu í listljósmyndun. Myndir af sýningunni má sjá hér.
Heimild: MTR.is