Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hlíðabæ við Eyjafjörð fimmtudaginn 27. apríl síðastliðinn. Þar kepptu fulltrúar Grunnskóla Fjallabyggðar, þau Hólmfríður Dögg Magnúsdóttir og Sebastían Amor Óskarsson, ásamt fulltrúum Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla og Dalvíkurskóla.
Nemendur stóðu sig með miklum sóma en Grunnskóli Fjallabyggðar lenti ekki í verðlaunasætum að þessu sinni. Sigurvegarinn kom frá Grenivíkurskóla.