Í tilefni útgáfu skáldsögunnar Náttúrulögmálin, sem kom út hjá Máli og menningu þann 19. október síðastliðinn, ætlar höfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl að heimsækja Norðurland næstu daga með skemmtidagskrá og skottið fullt af bókum. Á tæpum mánuði mun Eiríkur svo koma við á hátt á fjörutíu stöðum um land allt – knæpum, bókasöfnum, veitingastöðum, kaffihúsum, byggðasöfnum – og lesa upp úr Náttúrulögmálunum, segja frá sögusviðinu, hitta lesendur, sýna gamlar ljósmyndir, svara spurningum, strauja kort og árita bækur. Túrinn hefst 21. október og fyrstu vikuna sinnir Eiríkur sínum heimasveitum á Vestfjörðum áður en hann heldur réttsælis um landið.

Hægt er að ná í Eirík í síma 845-2685, á netfanginu eon@norddahl.org eða í gegnum messenger (https://www.facebook.com/eirikur.orn.norddahl).

Nánari upplýsingar um bókina má finna hér að neðan.

Túrinn um norðurland:

Sauðárkrókur, Grána Bistro, 29. október kl. 12.00
Dalvík, Gísli, Eiríkur, Helgi, 29. október, kl. 15.30
Siglufjörður, Alþýðuhúsið, 29. október, kl. 20 (ásamt fleirum)
Akureyri, Bókasafn HA, 30. október, kl. 12
Akureyri, Amtsbókasafnið, 30. október, kl. 17
Húsavík, HÉRNA, 31. október, kl. 17

Um bókina frá útgefanda, Máli og menningu:

„Hafið þér heyrt af þjóðtrú þeirri sem segir að ef sjö prestar og einn eineygður standi fyrir dyrum Ísafjarðarkirkju muni Gleiðarhjalli allur losna af Eyrarfjalli og hrynja yfir bæinn? Og þar með verði bundinn endi á alla mannabyggð á Ísafirði?”

Snemma sumars árið 1925 hefur yngsti, fegursti og jafnfram óviljugasti biskup Íslands, herra Jón Hallvarðsson, kallað til prestastefnu á Ísafirði. Megintilgangurinn virðist vera að storka þjóðtrú landans og sýna mátt kristindómsins frammi fyrir hindurvitnum, spíritisma og náttúruöflum. En með uppátæki sínu hleypir biskup af stað ófyrirsjáanlegri sjö daga atburðarás þar sem náttúra staðarins kallast á við náttúru mannsins.

Náttúrulögmálin er skáldsaga sem gefur einstaka og karnivalíska mynd af kaupstaðarlífi Ísafjarðar á miklum umbreytingartímum í sögu þjóðarinnar og heimsbyggðarinnar allrar. Hér er brugðið á leik með heimildir og sögulegar staðreyndir í hrífandi og bráðskemmtilegri sögu.

Um höfundinn:

Eiríkur Örn Norðdahl er rithöfundur, þýðandi og ljóðskáld.

Hann hefur gefið út níu skáldsögur, nú síðast Náttúrulögmálin. Bækur hans hafa verið þýddar á fjölda mála, þær hafa komið út víða um heim og fyrir þær er hann margverðlaunaður. Fyrir skáldsöguna Illsku hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlauninBókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, frönsku Transfuge-verðlaunin (sem hann hlaut aftur fyrir Heimsku) og var bókin auk þess tilnefnd til Bókmenntaverðlauna NorðurlandaráðsMedici-verðlaunanna og Prix Meilleur Livre Étranger. Eiríkur hefur einnig gefið út átta ljóðabækur, eina barnabók, ritstýrt tveimur bókum um ljóðlist, gefið út safn ritgerða um ljóðlist á ensku og skrifað stutta bók um bókaþjófnað og höfundarrétt. Þess utan hefur hann þýtt fjölda bóka, þar á meðal valin ljóð eftir Allen Ginsberg, safn erlendra framúrstefnuljóða og skáldsöguna Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem, en fyrir þá síðastnefndu hlaut hann Íslensku þýðingarverðlaunin 2008. Nýjasta þýðing hans er Hvítsvíta eftir Athenu Farrokhzad, sem kom út árið 2017 hjá Máli og menningu.

Eiríkur hefur verið staðarskáld í Vatnasafninu á Stykkishólmi, í boði Stykkishólmsbæjar og listasjóðsins Art Angel, sem og í Villa Martinson í Jonsered í Svíþjóð (2015) og í AIR Krems í Austurríki (2018). Árið 2010 hlaut Eiríkur viðurkenningu úr Fjölíssjóði. Eiríkur var Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2014-2015. Hann hefur hlotið aukaverðlaun Ljóðstafs Jóns úr Vör, Menningarverðlaun DV 2017 fyrir ljóðabókina Óratorreksérstaka viðurkenningu á kvikljóðahátíðinni Zebra Poetry Film Festival í Berlín, Sparibollann fyrir fegurstu ástarjátninguna og Rauðu fjöðrina, erótísk stílverðlaun lestrarfélagsins Krumma. Þá var barnabókin Frankensleikir tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 sem og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar.