Hið árlega Mývatnsmaraþon verður þreytt laugardaginn 1. júní.
Hlaupið hefst og endar í Jarðböðunum við Mývatn og hlaupið verður eftir þjóðveginum í kringum Mývatn. Það reynir vel á þol og styrk hlaupara í Mývatnsmaraþoni þar sem endaspretturinn getur tekið verulega á og þá er nú gott að vita að það verða Powerade drykkjarstöðvar í hlaupinu á 5 km fresti.
Sveitakeppni er í öllum vegalengdum nema 3 km. Sveitakeppnin er opinn flokkur og hámark 5 manns í hverjum hóp þar sem 3 bestu tímarnir gilda. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening, stuttermabol merktan hlaupinu, grillveislu og ókeypis í jarðböðin við Mývatn. Einnig verða veitt sérstök útdráttarverðlaun.
Upplýsingar um verð og skráningu er að finna á www.visitmyvatn.is og hægt verður að skrá sig til leiks fram á keppnisdag.