Hátíðarhöld vegna Sjómannadagshelgarinnar í Ólafsfirði fóru fram um helgina. Sjómannafélagið í Ólafsfirði heimsótti krakkanna á leikskólanum Leikhólum í Ólafsfirði fyrir helgina og færðum þeim sjómannadagsboli. Á laugardaginn var vel sótt dorgveiðikeppni, en því miður veiddust fáir fiskar. Þá var keppt í kappróðri og um Alfreðsstöngina í trukkadrætti og sundkeppni. Í ár eru 70 ár síðan fyrst var keppt um Alfreðsstöngina á Sjómannadegi í Ólafsfirði.
Knattspyrnuleikurinn var á sínum stað þar sem KF sigraði ÍH, en einnig kepptu Sjómenn og Landmenn, þar sigruðu sjómenn eftir vítaspyrnukeppni.
Á sunnudag var svo einnig fjölbreytt dagskrá eins og alla helgina, en dagurinn hófst með skrúðgöngu og hátíðarmessu. Hátíðin endaði svo með árshátíð.
Myndir með fréttinni koma frá Sjómannafélagi Ólafsfjarðar.
