Nú er Síldarævintýrinu á Siglufirði lokið en dagskrá hófst miðvikudaginn 29. júlí og lauk í gær þann 2. ágúst. Engin formleg dagskrá var í dag. Eins og undanfarin ár þá var metnaðarfull fjölskyldudagskrá og öflug tónlistardagskrá. Brenna, flugeldasýning og blys settu einnig svip sinn á hátíðina sem fór vel fram. Bjórleikar Seguls 67, bjórhlaup, fornbílasýning og fleiri viðburðir voru vel sóttir. Eins og oft áður spila veðurspár miklu hlutverki um hvert fólk fer yfir verslunarmannahelgina. Spáin fyrir Norðurlandi var ekki góð í upphafi vikunnar,en rættist töluvert úr veðrinu.
Aðsendar myndir: Randver Páll Gunnarsson.



























