Myndasöguhátíð Siglufjarðar, sem líklega er nyrsta myndasöguhátíð í heimi, mun hefjast í dag, 30. ágúst og standa til 1. september 2024. Þar munu íslenskir og erlendir listamenn og höfundar taka höndum saman með samfélaginu á Siglufirði og setja upp einstakan viðburð í kringum menningu myndasögunnar.

Myndasöguhátíðin á Siglufirði er til heiðurs myndasöguforminu þar sem fjölbreytileika miðilsins er gert hátt undir höfði. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þar sem fólk á öllum aldri ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Siglufjörður skipar sérstakan sess í íslenskri menningarsögu því auk þess að hafa verið miðstöð Síldarævintýrsins þá er hann einnig fæðingarstaður íslenskrar myndasöguútgáfu. Það var hér sem Siglufjarðar Prentsmiðjan skráði sig í sögubækurnar á fjórða áratug 20. aldar og var fyrst til að gefa út myndasögur á íslensku.

Með tilkomu Myndasöguhátíðarinnar á Siglufirði er komið að nýjum kafla í menningarsögu bæjarins og verður þetta fyrsta myndasöguhátíð Íslands.  Myndasöguhátíðin á Siglufirði er til heiðurs myndasöguforminu þar sem fjölbreytileika miðilsins er gert hátt undir höfði. Fjölbreytt dagskrá verður í boði og eitthvað fyrir alla. Listamenn verða með sýningarbása, „Drekktu og Teiknaðu“ kvöld með lifandi tónlist, spennandi sýningar, fyrirlestrar og teiknimyndir sýndar. Viðburðir fara fram víðsvegar um Siglufjörð og gefst gestum tækifæri að upplifa bæinn ásamt því njóta viðburða hátíðarinnar.

Í dag, föstudag verður meðal annars dagskrá í Alþýðhúsinu, Söluturninum Gallerí, Segli 67 og Síldarminjasafninu.