Í vikunni tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hvaða aðilar hlytu Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA) árið 2025. Ýmis áhugaverð verkefni eru verðlaunuð þar á meðal verkefni Menntaskólans á Tröllaskaga „Heimsmarkmiðin í öllu skólastarfi – lýðræðislegt samfélag í framkvæmd“ sem er heildræn og skapandi nálgun skólans að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í allt skólastarf.
Verður verkefnið fulltrúi Íslands á sérstakri verðlaunahátíð sem haldin verður í Brussel dagana 8.-9. desember.
Verðlaun þessi eru hluti af árlegri viðurkenningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á verkefnum sem skara fram úr á sviði kennslu og náms.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Reykjavík þann 15. október nk. þar sem fulltrúar MTR munu veita verðlaununum móttöku.
Þetta kom fram á vef mtr.is.