Beggi í Sóldögg heldur tónleika í kvöld kl. 21:00 á Rauðku og á morgun á Græna Hattinum á Akureyri. Missið ekki af þessum frábæra söngvara.

Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson eða Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur. Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….


Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.


Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg
Gítar , Banjo og raddir : Gunnar Þór Jónsson
Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson
Slagverk og raddir : Eysteinn Eysteinsson