Það er líf og fjör í Skarðsdalnum í gær þegar Jónsmótið var haldið á Siglufirði, en flytja þurfti skíðakeppnina frá Dalvík vegna snjóleysis þar. Í kringum 200 þátttakendur eru á mótinu ásamt stuðningsfólki, starfsmönnum og foreldrum. Keppt var í svigi 9-10 ára í gær og voru farnar tvær ferðir. Í dag er keppt í stórsvigi í öllum flokkum og er ein ferð farin.

Á föstudaginn var keppt í sundi 9-12 ára í sundlauginni á Dalvík. Nokkur félög komu langt að, en Víkingur,  Ármann og ÍR komu frá höfuðborginni.

SSS frá Siglufirði var að sjálfsögðu með keppendur á mótinu og náðu nokkur á verðlaunapall. Magnús Smári Guðmundsson var í 2. sæti í sundi drengja 9. ára. Díana Rut Ingvarsdóttir var í 1. sæti sundi 10 ára stúlkna og Emma Ísey Sverrisdóttir í 2. sæti. Ragnhildur Brynja frá Dalvík var í 3. sæti. Hjá 11 ára stúlkum í sundi var Katla Hrönn Magnúsdóttir frá Dalvík í 2. sæti. Í flokki 11 ára drengja var Marínó Örn Óskarsson í 1. sæti hjá SSS og Óliver Jökull í 3. sæti frá sama félagi. í flokki 12 ára stúlkna var Ragnheiður Kristín í 1. sæti frá SSS og Freyja Júlía í 3. sæti frá sama félagi. Í öðru sæti var Álfrún Mjöll frá Dalvík.

Myndir koma frá SSS og Skíðasvæðinu í Skarsðdal.