Mikill erill var hjá lögreglunnni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring og margt um manninn á Akureyri. Engin mál eru skráð hjá lögreglu á Siglufirði vegna fjölskylduhátíðarinnar Síldarævintýris.
Alls eru skáð 83 mál hjá lögreglu síðastliðinn sólarhring.
Átta mál komu upp vegna ölvunar eða vímuástands og þurftu tveir aðilar að gista í fangageymslu.
Fimm mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og forendar upplýst.
Tíu umferðarlagabrot eru skráð síðastliðinn sólarhing hjá lögreglu, ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa.
Ein líkamsárás var tilkynnt og er það mál til rannsóknar.
Níu einstaklingar voru handteknir og einn þeirra og vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæðinu á Akureyrarvelli, það mál einnig til rannsóknar.
Fjórir einstaklingar voru handteknir vegna fíkniefnalagabrots og var einn þeirra vistaður í fangageymslu.