Starfsmenn Síldarminjasafnsins á Siglufirði hafa staðið í ströngu í dag. Úrkoma hefur verið mikil á Siglufirði síðustu tvo daga og í morgun var vatnsaginn á safnsvæðinu eins og verst verður. Brunnar voru yfirfullir og frárennsli hafði ekki undan. Um hádegi í dag var vatnshæðin innanhúss á Síldarminjasafninu orðin rétt tæpir 80 cm.
Slökkvilið Fjallabyggðar brást skjótt við neyðarkalli frá safninu og vinna þeir að því að koma vatninu af lóðinni og innan úr Njarðarskemmu út í sjó, með öllum tiltækum dælum.
Að átta klukkustundum liðnum er enn töluvert vatnsmagn bæði innanhúss og utan.
Síldarminjasafnið greindi frá þessu í kvöld ásamt að birta myndir.