Fjarðarhjólið fór fram í dag í Ólafsfirði í blíðskapar veðri. Það er Skíðafélag Ólafsfjarðar sem er mótshaldari. Metþátttaka var í mótinu en alls voru 82 þátttakendur í ár. Mótahald gekk vel og frábær stemmning á marksvæði og mikið af áhorfendum enda sást keppnisbrautin nánast öll frá marksvæðinu. Öll úrslit má sjá hér.
Í 22 km Rafhjólaflokki karla sigraði Hjalti Jónsson HFA, í 2. sæti var Atli Steinn Sveinbjörnsson HFA og þriðji varð Kristján Hauksson SÓ.
Í kvennaflokki sigraði Sólveig Anna Brynjudóttir frá Hlíð Heilsurækt, í 2. sæti var Silja Jóhannesdóttir HFA og í 3. sæti Björk Óladóttir SÓ.
Í 8,8km Rafhjólaflokki karla sigraði Árni Helgason Team Kleifar, í 2. sæti var Anton Dagur Björgvinsson og í 3. sæti var Ásgeir Frímannsson Án þín.
Í kvennaflokki sigraði Harpa Guðnadóttir HFA, í 2. sæti var Ásdís Ýr Kristinsdóttir frá Hlíð Heilsurækt og 3. sæti var París Anna Hilmirsdóttir frá Hlíð Heilsurækt.
Í skemmtihjólinu hjóluðu 21 þátttakandi sveitahringinn.
Barnahjólið var frábært, en um 30 börn tóku þátt í ár og stóðu sig eins og hetjur.
