Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga auglýsir eftirfarandi störf:

  • Myndlistarkennara í 75% starf
  • Kennara í útivistargreinum í 50% starf
  • Íþróttakennara í 35% starf
  • Sérkennara eða þroskaþjálfa í kennslu á starfsbraut í 50% starf

Í umsókn skal gera grein fyrir menntun og fyrri störfum og er krafist kennsluréttinda á framhaldsskólastigi og menntunar í sérgreinum þar sem við á.

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans við KÍ.

Leitað er að starfsmönnum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og vilja taka þátt í uppbyggingu náms með dreif- og fjarnámssniði og í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Eftirsóknarvert er ef umsækjendur hafa menntun, þekkingu og reynslu sem nýtist skólanum umfram það starf sem er auglýst.

Einkunnarorð Menntaskólans á Tröllaskaga eru „Frumkvæði, sköpun og áræði“. Við leggjum áherslu á gott samstarf við samfélagið og umhverfi skólans. Skólinn leggur áherslu á fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir, virka notkun kennslukerfis (Moodle) og margs konar námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat. Umsækjendur þurfa að vera liprir í notkun upplýsingatækni.

Auglýsingin gildir í 6 mánuði.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Láru Stefánsdóttur skólameistara í netfangið lara@mtr.is

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 25. maí 2013.

Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Menntaskólinn á Tröllaskaga, v/Ægisgötu, 625 Ólafsfjörður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfanginu lara@mtr.is sími 460-4240.

Skólameistari