Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Áherslur ársins 2014
- Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
- Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema, og leikmanna
- Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu/ferðaþjónustutengdrar menningar
- Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
- Verkefni eða aðilar sem ekki hafa fengið stuðning menningarráðs áður
- Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista
Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2013. Úthlutun fer fram í febrúar meðfyrirvara um samþykki alþingis. Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2014. Ein úthlutun verður á árinu 2014.
Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþingi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum og stofn- og rekstrarstyrkjum 2014. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:
- Akureyri 18. og 19. nóvember kl. 9-12 Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3.h
- Dalvík 21. nóvember kl. 10-12 Menningarhúsinu Bergi, 2. hæð
- Ólafsfjörður 21. nóvember kl. 13-14 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
- Siglufjörður 21. nóvember kl. 14.30-16 Bæjarskrifstofu Siglufjarðar