Þann 7. október var tekið sýni úr neysluvatni fyrir íbúa á Árskógsströnd. Þann 10. október var niðurstaðan ljós og sýndi að neysluvatnið er mengað.  Í samráði við heilbrigðiseftirlit er því beint til íbúa að sjóða vatn til beinnar neyslu. Þetta kemur fram á vef Dalvíkurbyggðar.

Markvisst er verið að vinna að úrbótum og skolað út í stofnæðum og vatnstanka og fylgst með vatnsgæðum. Einn þáttur í þessu að nota klór til hreinsunar og geta íbúar fundi væga klórlykt á meðan á þessum aðgerðum stendur.