Hjalti Hafþórsson og Helga Jónsdóttir sýna málverk í Ráðhússsalnum, Gránugötu 24 á Siglufirði yfir páskana. Sýningar opnun var í dag þegar þessar myndir voru teknar. Töluvert magn af málverkum er á sýningunni, sem er opin dagana 2. apríl -5. apríl frá kl. 14:00-17:00. Sýningin er öllum opin og er á 2. hæð Ráðhússins. Er hún haldin vegna 60 ára afmæli Hjalta Hafþórssonar.
Íbúar og gestir eru hvattir til að skoða verkin.
