Laugardaginn 30. janúar kl. 14.00 – 16.30 efnir Alþýðuhúsið á Siglufirði til málþings um myndlist í Fjallabyggð.

Á undanförnum fimm árum hefur sýningarhald, fyrirlestrar, kennsla, samstarfsverkefni og heimsóknir listamanna til Fjallabyggðar stóraukist og vegna tilkomu Listhússins á Ólafsfirði, Menntaskólans á Tröllaskaga, Herhússins á Siglufirði og Alþýðuhússins á Siglufirði, hafa opnast nýjir og áhugaverðir möguleikar í bæjarfélaginu. Starfsemi þessi kemur sem viðbót við annars ágætis sýningarhald á vegum Rauðku, Síldarminjasafnsins, sal Ráðhússins á Siglufirði og annara einkaaðila/gallerýa. Einnig hefur Herhúsið verið í notkun síðan 2005.

Alla jafna eru myndlistasýningar í Kompunni Alþýðuhúsinu, Herhúsinu í lok listamannadvalar, í Listhúsinu og gjörningar í sal Alþýðuhússins. Í bæjarfélaginu eru 6-8 erlendir og innlendir listamenn í gestavinnustofum á hverjum tíma og fjölgar upp í 25 manns í ákveðnum verkefnum nokkrum sinnum á ári. Fjöldi manns eru í listnámi og ýmsar uppákomur og sýningar í öðrum sölum af og til.
Gestum fer fjölgandi ár frá ári sem einnig kunna æ betur að meta blómlegt listalíf.

Ýmsir listamenn sem dvalið hafa um stund við verkefni í Fjallabyggð hafa fest kaup á húsnæði og aðrir koma reglulega til lengri eða skemmri dvalar.
Fjöldi listamanna sem stunda list sína fullu starfi eru búsettir eða eiga hús í Fjallabyggð og setja svip sinn á samfélagið.

Á þessu málþingi verður fókusinn á myndlist, gott verður að fá einhverskonar heildarmynd yfir það sem í boði er, umfang, stöðu og hvert stefnir.

Dagskráin er sem hér segir:

  • kl. 14.00 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir , Alþýðuhúsið- Kompan, að koma heim.
  • kl. 14.15 Lára Stefánsdóttir, Listnám í heimabyggð.
  • kl. 14.30 Steinunn María Sveinsdóttir, Myndlist í Fjallabyggð.
  • kl. 14.45 Alice Liu, From 1 to 25: The development of Listhus in 5 years.
  • kl. 15.00 Kaffiveitingar
  • kl. 15.15 Logi Már Einarsson, Myndlist og samfélag.
  • kl. 15.30 Arnar Ómarsson, Reitir.
  • kl. 15.45 Guðný Róbertsdóttir, Herhúsið.
  • kl. 16.00 Opnar umræður.

Málþingið er öllum opið, og eru allir hvattir til að taka þátt sem láta sig málið varða. Ekkert þátttökugjald.  Allar upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091.