Í nótt var óskað eftir lögregluaðstoð að húsi í Ólafsfirði þar sem maður hafði verið stunginn með eggvopni. Lögreglumenn frá Akureyri héldu þegar á staðinn og lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskaga voru ræstir út. Þá voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri.
Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, sem var með áverka. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.
Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna þessa máls.
Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu.
Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag.
Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Samfélagið í Fjallabyggð er harmi slegið vegna þeirra atburða sem urðu í Ólafsfirði í nótt.
Kirkjan í Ólafsfirði verður opin í dag og samverustund verður í kirkjunni kl. 20:00 í kvöld.