Ár hvert heldur skólafélagið Huginn í Menntaskólanum á Akureyri góðgerðaviku í þeim tilgangi að styrkja gott málefni. Að þessu sinni var valið að styrkja Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandandur og söfnuðust alls 1.086.000 kr.
Á myndinni eru Benjamín Þorri Bergsson og Vera Mekkín Guðnadóttir fulltrúar skólafélagsins Hugins og Sólveig Ása Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krafts og MA-ingur.