Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 143. sinn í gær við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. Veðrið lék svo sannarlega við nýstúdentana og fjölskyldur þeirra.

Karl Frímannsson brautskráði sína fyrstu stúdenta og tímamótin voru fleiri því þetta er fyrsta skiptið sem eru brautskráðir stúdentar af sviðslistabraut.

Alls voru 156 stúdentar brautskráðir.

Dúx skólans er María Björk Friðriksdóttir 9,56 og Helga Viðarsdóttir semidúx með 9,54, báðar voru á heilbrigðisbraut.

Hæstur í 1. bekk: Árni Stefán Friðriksson í 1Y með 9,7.

Hæstur í 2. bekk: Magnús Máni Sigurgeirsson í 2X með 9,7.

Hæst í 3. bekk: María Björk Friðriksdóttir í 3T með 9,8.

Fjórir kennarar voru sérstaklega kvaddir við brautskráningu; Björn Vigfússon sögukennari, Margrét K. Jónsdóttir þýsku- og enskukennari, Selma Hauksdóttir dönskukennari og Sonja Sif Jóhannsdóttir kennari í náttúrulæsi, íþróttum og líffræði.  Skólameistari veitti þeim öllum gulluglu skólans í þakklætisskyni fyrir starf þeirra við skólann.

Það er löng hefð fyrir því að fulltrúar afmælisárganga komi að brautskráningu og flestir þeirra styrkja Uglusjóð, hollvinasjóð MA.

Fulltrúi 60 ára stúdenta, Bryndís Guðmundsdóttir

Fulltrúi 50 ára stúdenta, Aðalbjörg Helgadóttir

Fulltrúi 40 ára stúdenta, Kristín Gunnlaugsdóttir

Fulltrúi 25 ára stúdenta, Héðinn Jónsson. Hann tilkynnti einnig um úthlutanir úr Uglusjóði, til þróunarverkefna kennara og til félagslífs og aðstöðu nemenda.

70 ára stúdentar sendu kveðju sem skólameistari las upp.

Birgir Orri Ásgrímsson flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta, hann var forseti skólafélagsins Hugins sem stýrði félagslífi nemenda í vetur.