Dalvík/Reynir tók á móti KFG í 20. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla á Dalvíkurvelli. Dalvík/Reynir höfðu ekki unnið leik á Íslandsmótinu síðan 27. júní, en eftir sigur á KFA, fylgdu þrjú jafntefli og sex töp, þarf af tvö á heimavelli. D/R vann fyrri leik liðanna í sumar örugglega 0-6. Á tímabilinu í fyrra fór jafntefli á heimavelli KFG og vann D/R á Dalvíkurvelli.
D/R þurfti á sigri að halda til að sogast ekki niður í fallbaráttusvæðið, en þrjú lið eru á hættusvæði, eftir þessa 20. umferð, en það eru Hvíti Riddarinn með 17 stig, KFG með 19 stig og Þróttur Vogum með 19 stig. Kormákur er svo með 24 stig.
Það voru heimamenn sem gerðu fyrsta markið á 26. mínútu þegar Aires Sousa, hans 5 mark í sumar. Staðan var 1-0 í hálfleik og gerðu bæði lið eina skiptingu í hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik gerðu gestirnir þrefalda skiptingu og ætluð sér að reyna jafna leikinn. Á 75. mínútu var dæmd vítaspyrna á KFG, og tók Áki Sölvason spyrnuna fyrir D/R og skoraði, hans 10 mark í deildinni. Staðan orðin 2-0. Þjálfari D/R gerði þrjár skiptingar fljótlega eftir seinna markið og liðið vann góðan 2-0 sigur.
D/R er núna í 7. sæti með 25 stig. Fjölnir eru í 6. sæti með 26 stig og Magni í 8. sæti með 25 stig einnig. Hver sigur á lokasprettinum er því mikilvægur í baráttunni.
Tveir leikir eru nú eftir af Íslandsmótinu.