Ekkert ferðaveður verður á landinu snemma í fyrramálið, fimmtudag og fram yfir hádegi. Fjölmargir vegir verða lokaðir.

Búast má við töluverðum truflunum í samgöngum á öllu landinu í fyrramálið enda spáð vonskuveðri. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu í morgunsárið en gular viðvaranir verða í öðrum landshlutum.

Af þessum sökum hefur Vegagerðin ákveðið að loka ákveðnum vegum eða setja þá á óvissustig. Það þýðir að vegir geta lokast með litlum fyrirvara.

Hér að neðan er listi yfir þá vegi sem eru á óvissustigi eða verða lokaðir. Tímasetningar eru til viðmiðunar en staðan er endurmetin reglulega. Nauðsynlegt er að fylgjast með á umferdin.is til að fá nýjustu upplýsingar um lokanir vega. Einnig er hægt að hafa samband við umferðarsíma Vegagerðarinnar í 1777.

Veðurspá á Norðurlandi eystra á morgun eftir hádegið:

Austan og suðaustan 13-20 m/s og snjókoma og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð, einkum á fjallvegum.

Norðvesturland

  • Siglufjarðarvegur – óvissustig
  • Þverárfjall – óvissustig frá kl. 9:00
  • Vatnsskarð – óvissustig frá kl. 9:00

Norausturland

  • Öxnadalsheiði – óvissustig frá kl. 6:00
  • Víkurskarð – Lokað
  • Kópasker – Vopnafjörður – óvissustig frá kl. 11:00
  • Mývatns- og Möðrudalsöræfi – óvissustig frá kl. 11:00