Óvissustigi er í gildi vegna snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúla. Hættustigi hefur verið lýst yfir í kvöld og verður vegunum lokað kl. 22:00.

Krapi er mjög víða, m.a. á Vatnsskarði, víða í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Þæfingur er á Siglufjarðarvegi í Fljótum og á Víkurskarði en hálka og éljagangur er á öðrum helstu leiðum.

Ófært er á Þverárfjalli og ekki frekari þjónusta á veginum í dag.

Hríð um norðvestanvert landið í fyrstu, og dregur hægt úr vindi og ofankomu með deginum. Vestan hríð og blint á Vatnsskarði og Öxndalsheiði í nótt, og hviður yfir 35 m/s í vestanverðum Eyjafiðri. Lægir snemma í fyrramálið og styttir upp um hádegi á morgun.