Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögreglumanns með starfsstöð á Húsavík. Starfshlutfall er 100% og starfið vaktavinna. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins en þó er heimilt að víkja frá þeirri reglu ef umsækjendur með próf frá skólanum eru ekki tiltækir eða nægjanlega margir. Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í starfi, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum eða á lögregluvefnum www.logreglan.is, undir liðnum eyðublöð. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, ásamt ljósriti af prófskírteinum og öðrum gögnum skal skilað á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Þórunnarstræti 138, 600 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2016. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna til reynslu í 12 mánuði frá og með 1. september 2016.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Nánar á Starfatorgi.is.