Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við vasaþjófum en upplýsingar eru um að þeir hafi verið á ferðinni á þekktum ferðamannastöðum á Norðurlandi. Lögreglan vill minna fólk á að huga vel að eigum sínum og þá sem sjá um að fara með hópa á þekkta ferðamannastaði að upplýsa þá hópa um málið.