Ljósin voru tendruð á jólatrénu á Ráðhústorginu á Siglufirði í dag þegar fjölmenni mætti til að taka þátt. Karen Sif Róbertsdóttir flutti jólaávarp og börnin af Leikskólanum Leikskálum sungu af mikilli gleði og innlifun nokkur jólalög undir leiðsögn Hauks Orra sem spilaði undir á harmonikku.
Tryggvi og Guðmann fluttu svo nokkra hressandi jóla slagara áður en Matthías Skúli, 5 ára nemandi Leikskóla Fjallabyggðar kveikti ljósin á trénu.
Jólasveinarnir birtust svo óvænt með gott í poka og ærslagang við mikinn fögnuð barnanna.
