Ljóðahátíðin Haustglæður komin af stað og er það tuttugasta árið í röð sem hún er haldin í Fjallabyggð, en hátíðin hét áður Glóð.
Fyrsti viðburður hátíðarinnar var í lok ágúst þegar flutt voru ljóð og lög um sjó og sjómennsku á Ljóðasetrinu á Siglufirði, var sá viðburður einnig liður í Strandmenningarhátíðinni Auður hafs og stranda.
Á dögunum var svo annar viðburður þegar Þórarinn Hannesson forstöðumaður setursins heimsótti Sjálfsbjörgu á Siglufirði. Lék hann þar og söng, flutti ljóð og sagði gamansögur.
Framundan eru svo fleiri viðburðir eins og heimsókn skálds í Grunnskóla Fjallabyggðar og brúðunámskeið fyrir nemendur þar og í leikskólanum Leikskálum á Siglufirði.
Haustmarkaður verður á Ljóðasetrinu auk fleiri viðburða þar og víðar.