Listahátíðin Frjó á Siglufirði um næstu helgi
Helgina 9. – 11. júlí fer fram Frjó menningarhelgi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði með þátttöku 15 listamanna. Þetta verður í þriðja sinn sem efnt er til þver faglegrar menningardagskrár undir yfirskriftinni Frjó, en áður voru Reitir workshop haldið á þessum tíma. Dagskráin samanstendur af tónlist, myndlist, ljóðalestrum, bókverkaútgáfu og gong joga.
Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður tekið á móti frjálsum framlögum við innganginn.
Þátttakendur á Frjó eru:
- Ólöf Nordal – myndlist
- Eyjólfur Eyjólfsson – tónlist
- Björk Níelsdóttir – tónlist
- Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir – tónlist
- Línus Orri Gunnarsson – tónlist
- Ásgeir Ásgeirsson – tónlist
- Joaquin Belart – tónlist
- Þórir Hermann Óskarsson – tónlist, bókverkaútgáfa, ljóð
- Ragga Gröndal – tónlist
- Brák Jónsdóttir – Bókverkaútgáfa
- Magnus Trygvason Eliassen – tónlist
- Tumi Árnason – tónlist
- Ingibjörg Elsa Turchi – tónlist
- Hróðmar Sigurðsson – tónlist
- Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir – gong joga
Dagskrá á Frjó 2021
Föstudagur 9. júlí
- kl. 14.00 – Ólöf Nordal opnar sýninguna Villiljós í Kompunni.
- kl. 16.30 – Þórir Hermann Óskarsson ljóðalestur í sjö hlutum: The Rime of The Ancyent Marinere (1798) eftir Samuel Taylor Coleridge. Við Bergmyndir í Garðinum við Alþýðuhúsið.
- kl. 17.00 – Tónlistarhópurinn Gadus Morhua
- Björk Níelsdóttir söngur og langspil
- Eyjólfur Eyjólfsson söngur, flauta og langspil
- Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttur söngur og barokkselló.
- Kl. 18.00 – Linus Orri Gunnarsson, tilraun við þjóðlagatónlist. Með honum spila Ásgeir Ásgeirsson, Joaquín Belart, Þórir Hermann Óskarsson, Ragga Gröndal.
Laugardagur 10. júlí
- kl. 14.00 – Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.
- kl. 16.30 – Brák Jónsdóttir og Þórir Hermann Óskarsson, Pieces for playing: Bókakynning og útgáfutónleikar.
- kl. 20.00 – Magnus Trygvason Eliassen trommur og Tumi Árnason saxafón, tónleikar.
- kl. 21.00 – Brynja Hjálmsdóttir, ljóðskáld. Okfruman.
- kl. 21.30 – Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit, tónleikar.
- Ingibjörg Elsa Turchi – Rafbassi
- Tumi Árnason – Saxófónn og elektróník
- Magnús Trygvason Eliassen – Trommur
- Hróðmar Sigurðsson- Rafgítar
Sunnudagur 11. júlí
- kl. 11.00 – Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir gong jóga og hugleiðsla undir berum himni í Hvanneyrarkrók (fjaran norðan við bæinn) ef veður leyfir, annars í Alþýðuhúsinu.
- kl. 14.00 – Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.