Vélsleðafélag Ólafsfjarðar hefur fengið leyfi fyrir að halda snjókrosskeppni helgina 10.-12. apríl 2026 innanbæjar í Ólafsfirði. Keppnin hefur verið haldin undanfarin ár og hefur mikill fjöldi gesta mætt á svæðið og þátttaka verið góð á mótinu sjálfu.
Fjallabyggð leggur áherslu á að svæðinu sé skilað í sama ástandi ef til snjóflutninga kemur.