Viðbragðsaðilar í Eyjafirði voru kallaðir út um kl. 15:00 í gær vegna aðila sem hafði verið í smalamennsku innarlega í Eyjafirði og slasast. Mjög erfiðlega gekk að komast til mannsins og þá var ekki hægt að notast við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem kominn var norður, vegna misvinda í dalnum og mikils uppstreymis.
Þegar viðbragðsaðilar komust til hans var hann látinn. Tók þá við flókin fjallabjörgunaraðgerð þar sem færa þurfti manninn niður eina 500 metra í mjög brattri hlíð og bera hann síðan tæplega 3 km niður dalinn að flutningstæki sem þar var.
Þegar á leið verkefnið var óskað liðsinnis björgunarsveita úr Skagafirði og Þingeyjarsýslu og mættu hópar frá þeim og lögðu verkefninu liðsinni sitt.
Aðgerðum lauk um upp úr kl. 23:00 í gærkveldi. Um tildrög atviksins er ekki frekar vitað og er rannsókn í höndum lögreglu.