Einn efnilegasti leikmaður meistaraflokks Knattspyrnufélags Fjallabyggðar hefur verið boðaður á úrtaksæfingu hjá Þorvaldi Örlygssyni þjálfara Íslenska landsliðsins U-19 ára. Þetta er auðvitað Valur Reykjalín Þrastarson, fæddur árið 1999, hefur leikið 17 opinbera leiki fyrir meistaraflokk KF og skorað 1 mark.  Hann lék einnig með 2. flokki KF síðastliðið sumar, skoraði 3 mörk í fjórum leikjum. Æfingar fara fram í Kórnum í Kópavogi, 24.-25. febrúar. KA á tvo fulltrúa og Þór einn á þessari úrtaksæfingu.