Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli félagsheimilisins Höfðaborgar, í desember síðastliðinn stendur Leikfélag Hofsóss, Höfðaborg og Sönglög í Sæluviku fyrir stórsýningunni „Sveitapiltsins draumur eða martröð?“ – sem er frumsamið leikverk í bland við áður samda lifandi tónlist.
Nýir og ekki svo nýir leikfélagar munu skemmta áhorfendum í máli og myndum. Stjórn tónlistar er í höndum Stefáns Gíslasonar og Einars Þorvaldssonar og hafa þeir félagar fengið til liðs við sig fjölda skagfirskra hljóðfæraleikara og söngvara.
Uppselt er á sýninguna sem hefst kl. 21 í kvöld.