Leikfélag Fjallabyggðar hyggst setja upp barnaleikrit í menningarhúsinu Tjarnarborg í haust. Fjallabyggð hefur samþykkt að styrkja leikfélagið með eftirgjöf á húsaleigu í Tjarnarborg.
Leikfélagið sótti um menningarstyrk til sveitarfélagsins fyrir uppsetningu á sýningunni.
Bæjarráð Fjallabyggðar lýsti einnig yfir ánægju sinni með að leikfélagið ætli að setja upp barnaleikrit í Fjallabyggð.