Leikfélag Akureyrar frumsýnir Lísu í Undralandi
Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 27. febrúar næstkomandi verkið Lísu í Undralandi. Um er að ræða nýja leikgerð eftir Margréti Örnólfsdóttur. Í verkinu er fjöldinn allur af nýjum íslenskum lögum en þau semur Dr. Gunni. Eitt þeirra er þetta hér, Undraland. Thelma Marín leikur Lísu og syngur hún þetta lag. Aðrir leikarar í sýningunni eru Benedikt Gröndal, Pétur Ármannssson og Sólveig Guðmundsdóttir. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson.
Hlusta má á lagið hér.