Strandmenningarhátíðin Auður hafs og stranda hófst á Siglufirði á fimmtudaginn síðastliðinn. Hátíðin var sett í Bátahúsi Síldarminjasafnsins á Siglufirði þar sem Logi Einarsson menningarráðherra, Selma Reynisdóttir skólameistari FNV og Hafdís Huld Björnsdóttir, bæjarstjóri Fjallabyggðar tóku til máls, en Kristján Sveinsson stjórnarmaður í Vitafélaginu var kynnir.

Fjölbreytt dagskrá hefur verið alla dagana og lýkur dagskránni laugardaginn 29. ágúst.

Laugardagur 29. ágúst

Kl. 10:00 – 12:00 Síldarkaffið – námskeið í meðferð síldar. Skráning á kaffi@sild.is

Kl. 10:00 – 17:00 Slippurinn – Kvikmyndasýning: Björg – leiðarvísir í bátasmíði eftir Ásdísi Thoroddsen. Myndin rúllar allan daginn

Kl. 10:00 – 12:00 og 14:00 – 17:00 Slippurinn – Hafliði Aðalsteinsson bátasmiður fræðir áhugasama um bátasmíði og réttu handtökin

Kl. 12:00 – 14:00 Síldarkaffið – Skáldasúpa með Hallgrími Helgasyni rithöfundi

Kl. 12:00 – 14:00 Síldarkaffið, efri hæð – Kvikmyndasýning: Norrænn súðbyrðingur, stutt heimildamynd um handverk við smíði norrænna súðbyrðinga og notkun þeirra

Kl. 14:00 – 17:00 Síldarkaffið, efri hæð – Kvikmyndasýning: Súðbyrðingur – saga báts eftir Ásdísi Thoroddsen. Ásdís verður á staðnum og svarar spurningum

Kl. 14:00 Þjóðlagasetrið – Kveðið, spilað og sungið um haf og strönd – Rósa Jóhannesdóttir, Jóhannes Jökull Zimsen o.fl.

Kl. 14:00 – 17:00 Vinnustofur, handverks- og myndlistarsýningar

Söluturninn – Vatnslitir við höfnina – Örlygur Kristfinnsson. Myndlistarsýning

Segull – Happafengur – Susann Rittermann. Myndlistarsýning. Undiralda – Arna Valsdóttir. Vídeóverk unnið á Siglufirði 2024. 2. hæð: Bátarnir hans Hallgríms – Hallgrímur Ingólfsson. Myndlistarsýning

Grána, efri hæð – Það sem hafið gefur. Handverkssýning Arndísar Jóhannsdóttur, Katrínar Þorvaldsdóttur og Lene Zachariassen og kynning á leðurtextíl hjá nýsköpunarfyrirtækinu Nanna Lín

Kl. 14:00 – 16:00 Herhúsið, Norðurgötu 7b – Susann Rittermann að störfum. Hún vinnur með þang.

Kl. 16:00 Ljóðasetrið – Hafið bláa hafið. Lög og ljóð um sjóinn og sjómennskuna

Kl. 17:00 Grána – Kvikmyndasýningar: Íslands þúsund ár og Verstöðin Ísland eftir Erlend Sveinsson. Erlendur verður á staðnum og fræðir gesti um tilurð myndanna

Kl. 18:00 Síldarkaffið – Sögur hjartans – Þór Breiðfjörð Kristinsson syngur ný lög og segir sögur við sjóinn

Kl. 20:30 Við Síldarminjasafnið – Varðeldur og fjöldasöngur, forsöngvarar Stulli og Tóti

Kl. 21:30 Segull – Trúbadorarnir Danni og Kiddi