Mikill fjöldi lagði leið sína á Ráðhústorgið í gærkvöldi til að horfa á blysin og hlusta á tónlist. Í dag er einnig fjölbreytt dagskrá á Síldarævintýrinu á Siglufirði. Sagnasigling verður með Örkinni, Grill og gleði á Segli 67, Hoppukastalar og andlitsmálun í íþróttahúsinu, Hoppland við Ingvarsbryggju, krakkaleikarnir á Segli 67, Fornbílasýning, Bjórleikarnir hjá Segli 67 og lifandi tónlist. Tónleikar verða í Alþýðuhúsinu, Ráðhústorginu og á Kaffi Rauðku í kvöld. Ýmsar listsýningar eru opnar yfir daginn.

Dagskrá:

Laugardagur 2. ágúst
Kl. 10:00
Sagnasigling og veiðiferð með eikarbátum Örkinni *
Kl. 10.00 – 17.00
Síldarminjasafn:
Listsýning Ragnars Páls Einarssonar á Gránulofti
Kl. 11.30 – 18.00
Segull 67 – DJ, Grill og Gleði
Kl. 12.00 – 16.00
Íþróttahúsið á Siglufirði
Hoppukastalar, Nerfbyssur og andlitsmálun
Kl. 12.00 – 18.00
Hoppland – Stokkið í sjóinn á Ingvarsbryggju
(Takið með handklæði) Frítt 0 – 18 ára
Kl. 12.30 – 14.00
Segull 67 – Krakkaleikarnir
Kl. 14.00 – 16.30
Segull 67 – Fornbílasýning
Kl. 14:00 – 17:00
Alþýðuhúsið – Sýning í Kompunni, Anna Þóra Karlsdóttir
Kl. 15.00
Síldarsöltun og bryggjuball við Róaldsbrakka
Kl. 15.00 – 17.00
Segull 67 – Bjórleikarnir – Keppt í ýmsum þrautum
Kl. 16.00 – 18.00
Sundlaugin á Ólafsfirði – Frítt fyrir 0-16
Kl. 16.00 – 19.00
Segull 67 – Lifandi tónlist
Kl. 20.00 – 21.00
Alþýðuhúsið – Tónleikar með Marey
Anna Sóley Ásmundsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir
Kl. 20.00 – 23.30
Ráðhústorg – Afmælistónleikar Ástarpunganna
ásamt Eyþóri Inga og Skandal
Kl. 23.30
Kaffi Rauðka – Dansleikur með Landabandinu