Það er þétt dagskrá á Barokkhátíðinni á Hólum í Hjaltadal um helgina. Dagskráin er þessi á laugardag:

28. júní, laugardagur
9.00 Morgunleikfimi við Auðunarstofu í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur
9.30-12.00 Æfingar, söngnámskeið, dansnámskeið
12.00-12.30   Hádegisverður
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju
13.30-14.30 Æfingar, söngnámskeið, dansnámskeið
14.30-15.30 Fyrirlestur í Auðunarstofu.
     Kaffihlé
15.30-16.45 Danshljómsveit æfir með dönsurum
17.00-18.30 Tónleikar í Hóladómkirkju:
19.00 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla. Óskað er eftir að þátttakendur á hátíðinni troði upp með ýmis atriði, gamanmál, tónlist, leiklist, ræður eða annað skemmtilegt. Dreift verður nótum að léttum barokksönglögum og æft saman. Loks verður slegið upp barokkballi með undirleik hljómsveitar hátíðarinnar.